Formannafundur ÍF 19. september


Formannafundur Íþróttasambands fatlaðra fer fram laugardaginn 19. september næstkomandi í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal.

Fundurinn hefst kl. 13.00 og verður á 3.hæð í fundarsölum ÍSÍ við Engjaveg 6 í Reykjavík.

Á dagskrá fundarins verða málefni tengd starfinu innanlands og erlendis sem er umfangsmikið og fjölbreytt. Nýjar greinar eru stöðugt í þróun, nýliðun er sífelluverkefni og horft er til þess að ná í almenna iðkendur en jafnframt horfa til efnilegra iðkenda í afrekshópinn. Nýliðun á afrekssviðinu kallar á stöðuga athygli og þar getur ábending um einstakling skilað sér hratt og við réttar aðstæður náð á stuttum tíma að koma i sviðsljósið nýjum afreksmanni eða konu. Kynnt verður á fundinum íþróttamannaráð ÍF og uppbygging framtíðarhóps. Mót erlendis fyrir afreksfólkið eru grundvöllur að árangri en oft eru fáir til keppni innanlands. Mikil vinna er lögð í að velja vel mótin sem skila stigum á heimslista og henta hverjum keppanda. Innleiðing nýrra greina fá afrekssviðinu er háð samstarfi við félög, sérhæfða þjálfara og sérsambönd og það er gríðarlega mikilvægt að hægt sé að fylgja  vel eftir efnilegu íþróttafólki í ólíkum greinum um land allt.  Stefnan er tekin á Paralympics 2028.

Aðildarfélög ÍF hafa verið mjög virk á árinu 2026 að nýta opin tilboð um mót sem berast Special Olympics á Íslandi. Hundruð iðkenda á öllum aldri og af öllu landinu hafa notið tækifæra til þátttöku í mótum Special Olympics erlendis í einstaka grein eða fjölgreinamótum. Þessi tilboð skapa aukinn kraft og áhuga meðal þjálfara og iðkenda og nýir iðkendur stíga inn til þátttöku.  Árið 2026 átti Special Olympics á Íslandi í fyrsta skipti körfuboltalið á FIBA Open og fyrsta keppandann í júdó á Special Olympics móti erlendis.   Framundan eru heimsleikar Special Olympics í Chile 2027 og þar verða 28 íslenskir keppendur í níu íþróttagreinum. 

ÍF og Special Olympics eru í virku samstarfi við verkefnið ALLIR MEÐ og hafa lagt mikið að mörkum til að styðja við framgang verkefnisins. Innan ÍF og Special Olympics á Íslandi er dýrmæt reynsla, þekking og tengslanet sem mun áfram skila sér til framgangs ALLIR MEÐ. Íþróttagreinastjórar Special Olympics, þjálfarar innan aðildarfélaga og þjálfarar afrekshóps ÍF, nefndir ÍF og sérfræðingar á ýmsum sviðum hafa verið og eru klárir í að  taka þátt í að stuðla að aukinni virknir barna og ungmenna um land allt í nafni verkefnisins ALLIR MEÐ.  Innleiðing YAP verkefnisins heldur áfram og þar er horft til framtíðar, að öll börn stígi óhrædd inn í íþróttastarfið.

Það er nóg um að ræða á formannafundum ÍF og það er vert að benda á það mikilvæga starf sem aðildarfélög ÍF eru að vinna um land allt.